Tékkneskir töfrar 29.janúar
Níunda sinfónía Antoníns Dvoráks, Úr nýja heiminum, hefur notið feykilegra vinsælda allt frá því hún heyrðist fyrst. Á tónleikum SÍ 29. janúar gefst tækifæri á að heyra þetta undurfagra verk í flutningi tékkneska stjórnandans Tomasar Hanus.

Auk þess hljóma tvö önnur tékknesk verk á efnisskránni: Fiðlukonsert eftir Bohuslav Martinu, sem verður frumfluttur á Íslandi í flutningi Helgu Þóru Björgvinsdóttur. Helga Þóra hefur stundað fiðlunám í Berlín og París undanfarin ár og þykir einn efnilegasti tónlistarmaður Íslands af yngri kynslóðinni. Þeir sem hafa gaman af að heyra gamalkunn meistaraverk og kynnast nýjum mega ekki láta sig vanta á þessa tónleika.

Thomas Hanus þykir einn eftirtektarverðasti ungi stjórnandi Tékklands og hefur fengið glimrandi dóma víða um heim undanfarin ár. Hann vann alþjóðlegu stjórnandakeppnina í Katowice 1999 og hefur vakið mikla athygli sem óperustjórnandi, m.a. með Parísaróperunni og New York City Opera. Hann debúteraði með BBChljómsveitinni í London í mars sl. við frábærar viðtökur og stjórnaði á Mostly Mozarthátíðinni í New York sumarið 2007.

Kaupa miða  ::  Efnisskrá


SÍ tilnefnd til Grammy verðlauna
chandos.jpg
Sinfóníuhljómsveit Íslands og Rumon Gamba, aðalstjórnandi hljómsveitarinnar, eru tilnefnd til hinna virtu Grammy-verðlauna. Um er að ræða verðlaun sem veitt eru fyrir bestu frammistöðu hljómsveitar og hljómsveitarstjóra á hljómplötu. Tilnefninguna fær hljómsveitin fyrir geisladisk sinn með verkum eftir franska tónskáldið Vincent d´Indy, sem breska Chandos-útgáfan gaf út fyrr á þessu ári. 

Ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands eru Konunglega skoska hljómsveitin, Sinfóníuhljómsveit Chicagoborgar, og Holllywood Studio sinfóníuhljómsveitin tilnefndar í þessum flokki.

Vefur Grammy verðlaunanna